Selt með fyrirvara.
Frábært tækifæri.
Miðbær fasteignasala kynnir hið glæsilega Hótel Borealis. staðsett í nágrenni Úlfljótsvatns á Suðurlandi, aðeins 46 km frá Rvík. Hótelið býður upp á mismunandi gistiaðstöðu, hvort sem gestir vilja vera í stökum húsum eða aðalbyggingunni alls 41 herbergi.
Spennandi rekstur í ört vaxandi fjölgun ferðamanna, frábært tækifæri til uppbyggingar með margskonar möguleikum.
Eignarland alls 36 ha. Borhola með köldu vatni er á landinu.Lýsing eignar:Aðalbygging, er alls
14 tveggja manna herbergi, öll með bað og sturtu.
Matsalur, glæsilegur og bjartur.
Eldhús, búið ágætum tækjum.
Setustofa með sófasettum og hægindastólum.
Stór heitur pottur á verönd.Brúarholt, er heiti eins hússins og þar eru
5 herbergi með svefnaðstöða fyrir 12 mannsásamt eldhúsi og 2 baðherbergjum.
Villa ( Einbýlishús )Hús með
3 herbergjum og svefnaðstöðu fyrir 7 manns, eldhús, stofa, 2 baðherbergi og heittur pottur á verönd.
Efri-BrúÞar eru alls
11 tveggja manna herbergi og
2 þriggja manna herbergi og er bað og sturta er í hverju herbergi
3 sérstandandi hús.Hvert hús ca. 51,8 fm eða samtals 155.4 fm (þrjú hús)
samtals sex herbergi Auk þessa er hin svokallaða hlaða og fjós þar sem viðburðirnir taka á sig mynd og aðstaða fyrir veislur og viðburði fyrir allt að 250 manns.Í Hlöðunni er Prep eldhús, góða salernisaðstaða og þvottahús ( iðnaðarþvottahús)
(Minkahúsið)skemman) á lóðinni býður upp á ýmis tækifæri. Möguleiki er að gera þar góða þvotthúsaðstöðu auk til að mynda hjólhýsageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigfús Aðalsteinsson löggildur fasteignasali sími 8989979 eða [email protected]